Skilmálar

Velkomin í vefverslun BLUE LAGOON SKINCARE sem er í eigu og rekstri BLUE LAGOON SKINCARE ehf. kt. 671296-2819. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við BLUE LAGOON SKINCARE. Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum í vefverslun BLUE LAGOON SKINCARE ehf. Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Við kaup á vöru í vefverslun undirgengst viðskiptavinur þessa skilmála. Viðskiptavinur verður að hafa náð 18 ára aldri til að versla í vefverslun BLUE LAGOON SKINCARE.

1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Persónuvernd þín skiptir okkur máli og við leggjum okkur fram við að vernda þær persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té. Öll meðferð persónuupplýsinga er í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þegar þú kaupir vöru í vefverslun okkar vinnum við með nauðsynlegar upplýsingar til að geta afgreitt vörupöntunina. Nánari upplýsingar um hvaða persónuupplýsingum við söfnum og hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar má finna í persónuverndarstefnu okkar hér. Nánari upplýsingar um þær vefkökur sem við notum má einnig finna í persónuverndarstefnu okkar og í vefkökustefnu sem finna má hér.
 
2. VÖRUR TIL EINKANOTA
Vörurnar í vefverslun BLUE LAGOON SKINCARE eru til einkanota eingöngu. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum okkar án leyfis. Við áskiljum okkur rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
 
3. NOTKUN VÖRU
Allar okkar vörur eru til útvortis nota. Hverri vöru fylgir lýsing á viðeigandi notkun, bæði í vefverslun og á umbúðum. Ef þú notar vörurnar á annan hátt en notkunarleiðbeiningarnar kveða á um erum við ekki skaðabótaskyld né er unnt að krefja okkur um endurgreiðslu.

4. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA Á VEF, LAGERSTAÐA O.FL.
Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager.

Við kappkostum að hafa réttar lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um bilanir, vírusa, innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
 
5. VERÐ
Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrir fram.

Sendingarkostnaður er kr. 900 og kemur fram í pöntunarferli. Ekki er greitt fyrir sendingarkostnað á pöntunum yfir kr. 9.900.

6. FERILL PANTANA
Þegar þú hefur lokið við að panta vöru í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu og við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Við áskiljum okkur einnig rétt til að hætta við pöntun ef í ljós kemur að vara er ekki til á lager eða vegna þessa að vara hefur verið rangt verðlögð. Þegar vara hefur verið póstlögð berst þér staðfesting þess efnis. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga en póstsending getur tekið 1-4 virka daga, sjá nánar kafla 9 um Sendingar.

7. GREIÐSLULEIÐIR
Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun BLUE LAGOON SKINCARE; Visa, Mastercard.

Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.

Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftir á vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

8. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS
Við leggjum áherslu á öryggi viðskiptavina okka. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu. Undir lok pöntunarinnar flytur vefsíðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar. Gamlir vafrar geta verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.
 
9. SENDINGAR
Allar pantanir eru afgreiddar frá verslun okkar í Kringlunni og eru sendar með Póstinum um land allt. Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. Vörur eru einungis sendar innan Íslands. Almennt tekur póstsending 1-4 virka daga.

10. BREYTINGAR Á PÖNTUN
Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum milli kl. 10 og 16. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftir á getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á [email protected].

11. HÖFUNDA- OG HUGVERKARÉTTUR
Allt efni á vefverslun er í eigu BLUE LAGOON SKINCARE ehf. og er höfundavarið af bæði íslenskum og erlendum lögum.
Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis okkar.
 
12. SKILARÉTTUR
Framvísun reiknings/kvittunar er skilyrði fyrir vöruskilum.
Eftir að viðskiptavinur hefur móttekið vöru er hann hvattur til að yfirfara vöruna og ganga úr skugga um að reikningur/kvittun sé í samræmi við pöntun. Viðskiptavinur hefur rétt á að skila vöru innan 14 daga frá því að hann veitti vörunni viðtöku og fá hana að fullu endurgreidda. Endurgreiðsla vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins en annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá viðskiptavini, er á ábyrgð viðskiptavinar.
Hægt er að skila vöru með því að senda hana til BLUE LAGOON SKINCARE ehf., Norðurljósavegi 9, 241 Grindavík eða koma við í verslunum okkar í Kringlunni, á Laugavegi eða í Svartsengi, Grindavík.
Skilyrði fyrir vöruskilum eru að vara sé ónotuð, í fullkomnu lagi og að varan sé í óuppteknum upprunalegum umbúðum. BLUE LAGOON SKINCARE metur söluhæfi skilavöru og áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef framangreindum skilyrðum er áfátt.
Fjárhæð vöru sem skilað er fæst endurgreidd inn á þann greiðslumiðil sem notaður var við kaup.

Viðskiptavinur getur sent beiðni um skil á netfangið: [email protected] eða mætt í áðurgreindar verslanir BLUE LAGOON SKINCARE til að skila vöru.
 
Gölluð vara
Ef viðskiptavinur telur sig hafa fengið afhenta gallaða vöru ber honum að tilkynna það um leið og galla er vart með því að senda tilkynningu þess efnis á netfangið: [email protected] ásamt upplýsingum um pöntunarnúmer. Að öðrum kosti getur viðskiptavinur glatað rétti sínum til endurgreiðslu.
Framvísa þarf reikningi/kvittun til staðfestingar að vara hafi verið keypt í vefverslun BLUE LAGOON SKINCARE. Gölluð vara er endurgreidd ásamt sendingarkostnaði eða annað eintak af sömu vöru sent til viðskiptavinar honum að kostnaðarlausu.
 
Upplýsingar má einnig finna undir Sendingar og skilavörur.
 
13. BREYTINGAR Á SKILMÁLUM OG ÚRLAUSN ÁGREININGSMÁLA
Skilmálar þessir geta tekið breytingum frá einum tíma til annars. Þær breytingar sem kunna að vera gerðar taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið birt á vefsíðu okkar.
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli aðila og aðilum auðnast ekki að leysa hann sín á milli eða fyrir viðeigandi stjórnvöldum skal ágreiningurinn lagður fyrir Héraðsdóm Reykjaness til úrlausnar.
Síðast uppfært 6. febrúar 2024.